Söluhross og reiðkennsla 01.02.2010 - Sigga Pje Erum með mikið af hrossum til sölu í augnablikinu á öllum stigum tamningar. Mörg eru hér til sýnis á síðunni en erum með mun fleiri hross á skrá. Einnig er reiðkennsla í fullum gangi. Verið velkomin að hafa samband eða kíkja á okkur í sveitina. Frekari upplýsingar hjá Siggu: 8997792 siggapjeturs@simnet.is eða Elsu: 892-7159 elsa-m@islandia.is |
|
Gleðilegt ár 2010 - fyrirsætustörf og leikrænir hæfileikar 09.01.2010 - Sigga Pje Það hefur varla farið framhjá nokkrum að bóndinn á bænum sló heldur betur um sig á dögunum og gerðist bæði leikari og fyrirsæta. Nú síðast fréttum við af kallinum á forsíðunni á heimablaðinu á Húsavík - þannig að hann hefur komið víða við að undanförnu. Að hans eigin sögn hefur hann mikið til brunns að bera á þessu sviði enda tekur hann sig bara mjög vel út bæði í sjónvarpinu og á prenti. Svo er bara spurning hvað hann tekur sér næst fyrir hendur. |