Gleðileg jól og gæfuríkt ár

20.12.2009 - Sigga Pje

Við viljum óska vinum og velunnurum okkar um heim allan gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs með þökk fyrir árið sem er að líða. Hlökkum til að hefja nýtt og spennandi ár og vonandi sjáum við sem flesta í sveitinni á nýja árinu.

Kiljan frá Bólstað er meðal söluhrossa

Mikið úrval söluhrossa

- Nú er fullt hús af hestum og allskyns tilboð í gangi

18.11.2009 - Sigga Pje

Nú eru rúmlega 30 hross í þjálfun á Sólvangi og sjaldan verið jafn mikið af spennandi hrossum. Endilega kíkið á sölusíðuna hérna eða bara kíkið á okkur í sveitina. Við erum að reyna að gera ný myndbönd og taka myndir af hrossunum og vonandi verður eitthvað nýtt sett inn á hverjum degi út mánuðinn.

Sendum öllum kæran koss

komið og skoðið hesta.

Eflaust finnið hérna hross

sem henta fyrir flesta.

Erum með flokkinn fríðan

farið þess ekki á mis.

Hressist núna heimasíðan

hesturinn punktur is

 

Myndasaga

- Smá brot úr lífi fjölskyldunnar á Sólvangi

11.11.2009 - Sigga Pje

 

 

Merarnar og folöldin fengu ormalyf í vikunni og Berta Sóley fékk að sitja á öllum hryssunum :) Þarna er hún á Iðu frá Sólvangi.

Það er nú ekkert leiðinlegt hjá þeim Elsu og Bertu Sóley

Elsa Kristín - nýjasta prinsessan á bænum

 

Haustfréttir

- ýmislegt að gerast á bænum

09.11.2009 - Sigga Pje

Já það er margt búið að gerast hér á bænum undanfarið þó að heimasíðan hafi verið í smá dvala. Í ágúst kom nefnilega ein lítil prinsessa í viðbót á Sólvang, en það er hún Elsa Kristín. Það er því búið að vera heilmikið að gera í kringum litlu börnin hérna á bænum og þykir ömmu Elsu og afa Pjetri það nú ekki leiðinlegt.

Núna erum við svo komin með fullt hús af hrossum og mikið af efnilegum hrossum þar á ferð. Endilega kíkið inn á sölusíðuna - við erum að reyna að taka einhver video núna í haustblíðunni svo að vonandi verðum við búin að endurnýja flest á næstu dögum eða vikum :) Ég held að við eigum til hross núna handa flestum þannig að það er margt spennandi í boði af hrossum af öllum stærðum og gerðum og á öllum stigum tamningar..

Kennsla er að sjálfsögðu í fullum gangi líka og bjóðum við núna upp á gjafabréf í einkakennslu- sem væri sniðugt fyrir marga í jólapakkann. Þetta er tilvalin gjöf fyrir alla þá sem að hafa dreymt um að byrja aftur í hestamennsku eftir einhvern tíma og/eða þá sem vilja bæta við þekkingu sína sem reiðmenn.

Therese á Flögra frá Sólvangi - efnilegur stóðhestur þar á ferð.

Sigga og Ósk frá Forsæti - Gamlar vinkonur - báðar að koma úr barnseign :)

Það er alltaf farið í rekstrartúra öðru hverju - frábær tilbreyting fyrir hross og menn.

 

Elsa og Þytur fengu hinn eftirsótta Sleipnisskjöld afhentan

Gamli klikkar ekki

- Þytur og Elsa fengu afhentan Sleipniskjöldinn

29.07.2009 - Sigga Pje

Gæðingamót Sleipnis var haldið á Selfossi um síðastliðna helgi. Mótið var opið og mátti þar sjá mikið af góðum hestum og knöpum. Elsa og Þytur tóku þátt í A-flokknum og fengu enn á ný afhentan hinn eftirsótta Sleipnisskjöld. En hann hefur prýtt veggi heimilisins í þónokkur ár og afhentur efsta Sleipnisfélaga í A-flokki. Við erum ekki alveg viss en við höldum 6 ár en Palli Hólmars í Austurkoti fékk hann eitt ár þar á milli. Það hafði ekki gefist mikill tími í að þjálfa gæðingana vegna heyskaps og því vorum við mjög ánægð með frammistöðu Þyts (þrátt fyrir stóra bumbu :)og ennþá ánægðari að endurheimta skjöldinn dýrmæta.

 

Grétar og Berta Sóley gera við rúlluvélina

 

 

Allt á fullu í heyskapnum

-Fréttir af búskapnum

15.07.2009 - Sigga Pje

Nú er heyskapur í fullum gangi og gengur mjög vel. Enda veðurblíðan búin að vera einstök upp á síðkastið. Það stefnir allt í að við fáum í hús tæpar 600 rúllur. Eins og sést á myndunum þá leggja allir á bænum hönd á plóg á einn eða annan hátt :)

Elsa á tætlunni

 

Sigga á Sylgju frá Sólvangi sumarið 2007

Sylgja frá Sólvangi í fyrstu verðlaun

-Klárhryssa með 9 fyrir tölt og vilja og geðslag

15.07.2009 - Sigga Pje

Ég átti alltaf eftir að segja frá því að hún Sylgja frá Sólvangi fór í fyrstu verðlaun í byrjun júní á Gaddstaðaflötum. En það er fjallað um hana hérna fyrir neðan. Hún var semsagt sýnd einnig á Hellu og hækkaði þar m.a. fyrir stökk úr 8 í 8.5 og úr 8,5 í 9 fyrir vilja og geðslag. Ekki slæmt það :)

Við eigum mjög efnilega hryssu sem heitir Hespa og sammæðra henni Sylgju og undan Mjölni frá Sandhólaferju (sem er með 10 fyrir tölt í kynbótadómi) og finnst okkur hún vera að springa út í augnablikinu. Enda var mamma þeirra, Loka frá Vogsósum, eitt af okkar betri keppnishrossum á sínum tíma. Mjög rúm og hágeng klárhryssa undan Kolfinni frá Kjarnholtum.

 

Spóla og Halldór Guðjónsson

Kostir
Tölt 8
Brokk 7.5
Skeið 8.5
Stökk 7.5
Vilji og geðslag 8.5
Fegurð í reið 8
Fet 7
Hæfileikar 8.05
Hægt tölt 7.5
Hægt stökk 8

Sköpulag
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 8
Bak og lend 8
Samræmi 7.5
Fótagerð 8.5
Réttleiki 7
Hófar 7.5
Prúðleiki 8
Sköpulag 7.87

Aðaleinkunn 7.98

Spóla frá Sólvangi í fyrstu verðlaun fyrir hæfileika

-Fréttir úr ræktuninni

05.06.2009 - Sigga Pje

Önnur hryssan sem að fór í dóm frá Sólvangi í ár er hún Spóla. Hún er 6 vetra og undan fyrstu verðlauna Orradóttirinni okkar Steinvöru frá Nautabúi, sem er ein okkar besta ræktunarhryssa og var mjög farsælt keppnishross. Faðir hennar er svo hann Spölur frá Hafsteinsstöðum sem var einnig lengi í eigu okkar fjölskyldunnar og er enn að gera góða hluti á keppnisvellinum.

Ég (Sigga) fékk að halda Steinvöru á sínum tíma og hélt henni að sjálfsögðu undir einn uppáhaldshestinn minn. Það hefur því verið mjög skemmtilegt að fylgjast með þróuninn á Spólu þar sem hún er algjörlega heimatilbúin :) Þess vegna er það ennþá skemmtilegra að frumraunin hennar hafi tekist svona vel og fór hún í ágætis dóm þ.e. 8.05 fyrir kosti, þar af 8.5 fyrir skeið og 8 fyrir tölt og 7.87 fyrir sköpulag sem gerir 7.98 í aðaleinkunn. Við vorum svo að vonast til þess að hún myndi hækka fyrir fet (sem er að öllu venju mjög gott) í yfirlitinu sem hefði verið nóg til að koma henni í fyrstu verðlaun en því miður var kappið of mikið í kellu.

Það var hann Dóri í Dal (Halldór Guðjónsson) sem sýndi hana Spólu fyrir mig, þar sem að við bumbubúinn erum fyrir nokkru komin af baki og ég var hæst ánægð með hans vinnu. Svo er bara stefnan tekin á keppni næsta vetur og sumar og ætli við vinkonurnar prófum ekki bara sjálfar að spreyta okkur á kynbótavellinum næsta eða þarnæsta sumar og fara þá yfir blessaða áttuna.

 

 

Sigga á Sylgju frá Sólvangi sumarið 2007

Sköpulag
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 8
Bak og lend 8
Samræmi 8
Fótagerð 7.5
Réttleiki 8.5
Hófar 8
Prúðleiki 7.5
Sköpulag 7.94

Kostir
Tölt 9
Brokk 8
Skeið 5
Stökk 8
Vilji og geðslag 8.5
Fegurð í reið 8.5
Fet 8
Hæfileikar 7.99
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8.5
Aðaleinkunn 7.97

Sylgja frá Sólvangi fékk 9 fyrir tölt

-Fréttir úr ræktuninni

19.05.2009 - Sigga Pje

Eins og flestir vita fluttum við á Sólvang árið 2000 og síðan þá höfum við verið að fikra okkur áfram í ræktun. Nú er gaman að segja frá því að eitt fyrsta folaldið sem fæddist hér á bæ fór í kynbótadóm í síðustu viku í Víðidal og fékk hvorki meira né minna en 9 fyrir tölt.

Sylgja er undan Kolfinnsdóttirinni Loku frá Vogsósum 2, en sú hryssa náði frábærum árangri í tölti og B-flokki á sýnum yngri árum. Faðir hennar Sylgju er svo Piltssonurinn Hrókur frá Hlemmiskeiði, farsæll keppnishestur, sem var eitt sinn í eigu okkar fjölskyldunnar en er nú í Ameríku.

Sylgja er síðan fyrir 2 árum í eigu Arnars Davíðs Arngrímssonar sem var vinnumaður hjá okkur í 2 sumur og það er mjög ánægjulegt hversu vel hefur tekist til við þjálfun hryssunar. Arnar hugsar alveg einstaklega vel um hrossin sín og ég held að það sé stór hluti af því hversu vel gengur hjá þeim :)

Hægt er að skoða fullnaðardóminn á hryssunni hér vinstra megin. Það var Arnar sjálfur sem sýndi hryssuna í fordóm en hún Hrefna María (einnig fyrrum vinnukona á Sólvangi :) reið Sylgju í yfirlitinu.

Hérna er video af Sylgju í sýningunni: http://www.benmedia.is/media/kbs09/sylgja-solvangi-kbs-vididal-09-net.wmv

Loka mamma hennar Sylgju er enn í folaldseignum hér á bæ og hægt er að skoða 2 systkyni hennar á sölusíðunni, það er þau Lykill og Hespa Mjölnisdóttir (sem við teljum að eigi eftir gera góða hluti).

 

Ríður um sveitir á almennilegu tölti

-Elsa í viðtali á Hestafréttum

25.01.2009 - sjá http://www.hestafrettir.is/Frettir/5504/

Í vikunni var birt viðtal við Elsu á Hestafréttum.is en þar er öðru hverju tekinn púlsinn á ræktendum og tamningamönnum. Þar var hún meðal annars spurð út í ræktunina á Sólvangi, ræktunarmarkmið, keppni, námið á Hólum og margt fleira. Viðtalið í heild sinni má skoða hér: http://www.hestafrettir.is/Frettir/5504/

 

Sigga og Spölur frá Hafsteinsstöðum

Sigga og Þytur frá Kálfhóli II

Fljótt flýgur fiskisagan

-Sigga hætt í Meistaradeildinni

14.01.2009 - skrifað af Siggu Pje

Eins og nú þegar hefur komið fram í hófapressunni ákvað ég fyrir stuttu að segja mig úr Meistaradeildinni þriðja árið í röð. Það mætti halda að ég væri að gera grín að deildinni með því að segja sæti mínu lausu svona oft en það hafa nú verið góðar og gildar ástæður til þess s.s. vegna meðgöngu og skólagöngu.

Ég ætlaði nú ekkert að vera að segja frá því strax af hverju ég sagði mig úr deildinni í ár en hjá því verður nú ekki komist eftir að fundargerð aðalafundar Meistaradeildarinnar var birt á vefmiðlum, eins ýtarleg og hún nú var. Ég ætla nú ekkert að fara að rýna í efni hennar enda voru þessar persónulega ástæður mínar teknar út af vefmiðlunum að minni ósk. En mér finnst mjög ósmekklegt að birta svona upplýsingar opinberlega og varð dálítið heitt í hamsi, þrátt fyrir að flestir innan hestamennskunnar hafi svosem fengið eldheitar fréttirnar fyrir löngu, vegna hitans um knapavalið í Meistaradeildinni. Það er ótrúlega skrítið að ritari fundarins hafi ákveðið að láta þessar persónulegu ástæðu mína fylgja með í fundargerðinni þegar ég var nefnd á nafn en ég geri ráð fyrir því að þetta hafi nú bara verið gert vegna vanhugsunar. Þetta er samt næstum eins og að segja "Einn knapi hefur ákveðið að gefa eftir sæti sitt, en það er hann Jón Jónsson sem er með klamidíu og spurning hvernig stjórnin ætlar að taka á því" hahaha ég bara segi svona :)

Já það er nú meira hvað fiskisagan flýgur í þessari hestamennsku. En hvað um það maður ætti nú að vera kominn með harðan skráp :) Ég vel bara áheyrendur mína betur næst.

Fyrst að ég er byrjuð á hálfgerði bloggfærslu þá get ég nú ekki stillt mig um að halda aðeins áfram. Ég var nefnilega dálítið spæld yfir því að þurfa að segja mig úr hinni annars ágætu Meistaradeild í ár. Þar sem ég var og er ágætlega hestuð og bara nokkuð vel undirbúin og hlakkaði til að taka þátt. Að sjálfsögðu tekur bara eitthvað skemmtilegra við :) En hitt er annað mál að ég var og er mjög ósátt við hvernig deildin hefur ákveðið að taka á vali nýrra knapa inn í deildina. Að mínu mati finnst mér nýtt fyrirkomulag leiða til enn frekari klíkuskapar þar sem aurarnir munu að sjálfsögðu ráða miklu ef ekki öllu. Þetta finnst mér ömurleg þróun á annars frábæru keppnisfyrirkomulagi. Eins hefur verið haft á orði að væntanlega verði ekki haldin úrtaka á næsta ári. Þá get ég nú bara gleymt því að komast aftur inn í þessa deild þar sem að maður er nú ekki einn af fína, fræga og ríka fólkinu. Við gætum jú miðað við núverandi forsendur keypt okkur inn með t.d. "Sólvangsliðið" á næsta ári. En þá yrði nú einhver á heimilinu að vinna í Lottóinu.

Ég hef eins og fleiri rætt þetta fram og til baka við marga keppendur Meistaradeildarinnar og aðra. Og hef ekki heyrt í neinum til þessa sem finnst þetta bara allt í lagi. Ótrúlegt að það þurfi að fara leið sem flestir eru ósáttir við. Annars hef ég ekki trú á öðru en að þeir sem að eru mjög ósáttir með þetta muni sýna það á einn eða annan hátt. Ég er allavega búin að segja skoðun mína á þessu en mun svo að sjálfsögðu fylgjast að einhverju leiti með Meistaradeildinni og hlakka til að sjá hvernig leikar fara. Vonandi get ég svo tekið þátt á ný í deildinni þegar ég verð aftur komin á keppnisvöllinn á eigin verðleikum og góðum hestakosti óháð stöðu buddunnar.

 

 

Check out our webpage in English

Many good horses for sale on reduced prices!!!

 

Snemma beygist krókurinn

-Berta Sóley komin á hestbak

28.10.2008 - skrifað af Siggu Pje

 

Berta Sóley litla er nú orðin átta mánaða gömul og dafnar mjög vel. Hún á nú ekki langt að sækja það að hafa gaman af dýrunum og hérna er hún komin skælbrosandi á bak á Móra frá Syðstu-Grund. Hundarnir á Sólvangi sem að eru í augnablikinu fjórir talsins hafa einnig vakið mikla lukku en ekkert jafnast á við það að fara á hestbak. Það verður svo fróðlegt að vita hvort að hestarnir verði eins áhugaverðir og skemmtilegir þegar á líður :) Vonandi fer hún ekki í vélfákana eins og pabbi sinn heheheh....

 

 

Viltu taka knapamerkin?

-Reiðkennsla

13.10.2008 - skrifað af Siggu Pje

Ef svo er þá getum við á Sólvangi hjálpað þér og þú gætir byrjað námið strax á morgun. Knapamerkin eru stigskipt nám í hestamennsku þar sem nemandinn er leiddur áfram stig af stigi í takt við getu hans og áhuga. Og er þetta tilvalin leið fyrir fólk á öllum aldri til að bæta við þekkingu sína með skipulögðum hætti. (Sjá:http://www.holar.is/knapamerki/kynning.htm).

Við bjóðum fólki upp á að taka knapamerkin hjá okkur á Sólvangi og skipuleggjum námið eftir þörfum hvers og eins. Einnig getum við í flestum tilfellum lánað vel undirbúin hross til þess að fara í gegnum námið á. Þó er yfirleitt skemmtilegra ef nemendur geta komið með sín eigin hross og bæta þau samfara náminu. Hesturinn getur þá verið hjá okkur meðan á námi stendur og við gætum einnig þjálfað hann á milli kennslustunda ef þess er óskað. Endilega hafið samband til að fá frekari upplýsingar um námið eða skráið ykkur strax í dag og við finnum út úr því í sameiningu hvernig við högum náminu.

 

Sigga við reiðkennslu á Hólum

Viltu dusta af þér rykið?

-Reiðkennsla

13.09.2008 - skrifað af Siggu Pje

Það er eins með hestamennskuna eins og allt annað að maður getur endalaust lært nýja hluti. Í haust ætlum við því að bjóða alla þá velkomna á námskeið sem eru tilbúnir að dusta af sér rykið, læra nýja hluti og bæta sig sem reiðmenn. Við mæðgurnar (Elsa og Sigga) erum báðar reiðkennarar og búum að mikilli reynslu.

Við leggjum áherslu á það í reiðkennslunni að bæta samband og samspil manns og hests. Einnig að nemendurnir öðlist meiri þekkingu á hestinum, skilji eðli hans og nái góðri færni í að stjórna hestum sínum við ýmsar aðstæður. Eins að nemendurnir auki færni sína til þess að skilja mikilvægi réttra ábendinga og nái góðum tökum á því að stjórna hraða, stefnu og gangtegundum hests síns. Það gerum við meðal annars með því að hjálpa knöpunum að fá betri og fleiri verkfæri (t.d. fimiæfingar og sætisæfingar) til þess að bæta sjálfan sig og sinn hest.

Algengast er að fólk komi til okkar í einkatíma en einnig geta fjölskyldur eða vinir tekið sig saman og fengið kennslu. Við getum í flestum tilfellum skaffað hross sem hæfir hverjum einstaklingi fyrir sig en það er einnig möguleiki að koma með sín eigin hross.

Verið velkomin að hafa samband við Siggu (8997792) eða Elsu (8927159) til að fá frekari upplýsingar eða bara sláið á þráðinn og við finnum hentugan tíma í sameiningu fyrir fyrstu kennslustundina.

 

 

Komin inn í Meistaradeild VÍS

11.09.2008 - skrifað af Siggu Pje

Í gær var haldið úrtökumót fyrir Meistaradeild VÍS 2009. Að þessu sinni var keppt í fjórgangi, tölti, fimmgangi og flugskeiði og hlutu átta efstu keppendur þátttökurétt í deildinni. Það hafði í raun ekki verið planið að taka þátt að þessu sinni og var ég fyrir nokkru búin að draga undan keppnishestunum mínum og setja þá í haustbeitina. En á síðustu stundu stóðst ég ekki freistinguna og náði í höfðingjana þá Farsæl og Þyt og byrjaði að þjálfa. Þetta tókst svo bara með ágætum en ég byrjaði að vísu frekar illa í fjórganginum á Farsæl. Ég var skíthrædd við beygjurnar og reið bara allt of huggulega, greinilega ekki alveg komin í gírinn. Eftir það var komið keppnisskap í mína og við Þytur stóðum okkur með prýði í fimmganginum og sigruðum þá grein. Gamli var í feikna stuði þannig að ég ákvað bara að fara með hann líka í töltið og höfðu margir á orði að Þytur hefði komið öllum á óvart í þeirri grein. Svo fórum við að sjálfsögðu á ágætis tíma í gegnum höllina í skeiðinu og fengum fjórða besta tímann þar. Í heildina varð ég því sjötta og bara nokkuð sátt við það. Nú er svo bara að fara að koma sér upp góðu setti fyrir tímabilið og tel ég mig bara í nokkuð góðum málum ef Þytur heldur áfram að vera í stuði og svo hef ég í bakhöndinni hross eins og Ósk frá Forsæti, Farsæl frá Neskaupstað, Sprota frá Kambi, Frosta frá Ey og Sjóð frá Sólvangi sem eflaust mun koma sterkur inn á næsta ári.

Spurning hvort maður fari ekki bara að þjálfa gamla upp í töltið ;)

 

 

Julio Borba á Íslandi:

Lagði Þyt á skeið og fór í veiði með Hafliða

10.08.2008 - skrifað af Siggu Pje

Ég var svo heppinn að fá að taka þátt í tveggja daga löngu reiðnámskeiði í vikunni hjá hinum portúgalska reiðsnillingi Júlio Borba, sem er orðinn okkur íslenska hestafólkinu nokkuð vel kunnur. En námskeiðið var skipulagt af Olil Amble og haldið í glæsilegri aðstöðu hjá Freyju Hilmarsdóttir í Votmúla. Ég fór með hann Sjóð okkar frá Sólvangi, 4 vetra stóðhest undan fyrstu verðlauna Orradóttirinni Steinvöru frá Nautabúi og Óð frá Brún og stóð hann sig með mestu prýði. Mamma og Berta Sóley fengu að fylgjast með þannig að við vorum þá 3 kynslóðir á reiðnámskeiði, ekki slæmt það :)



Það er alltaf gaman að fara á námskeið en ég verð nú að segja að þetta var alveg frábært. Kennslan var eins og hún gerist best en Júlio leggur mikið upp úr því að nemandinn skilji vel það sem hann vill koma á framfæri og býr til mjög þægilegt andrúmsloft í kringum sig með framandi tónlist á fóninum. Á námskeiðinu voru 7 nemendur, fékk hver eina klukkustund á dag af reiðkennslu, flestir snæddu saman dýrindis hádegisverð og gátu síðan fylgst með hinum. Það má með sanni segja að Júlio hafi þarna verið í fögrum kvennafansi því að þessu sinni voru 6 konur (og mamma og Berta Sóley) og einn karl á námskeiðinu. Ég held að honum hafi nú ekki leiðst það og á milli stríða mynduðust mjög skemmtilegar umræður af öllum toga, allt frá því að tala um reiðmennsku til þess að segja frá prakkarastrikum frá því í gamla daga.

Júlío hefur náð feiknagóðum tökum á tölti íslenska hestsins en hann hefur einnig sýnt því áhuga að fá að kynnast skeiðinu betur. Því var brugðið á það ráð að fara í langan reiðtúr frá Halakoti þar sem hann gæti prófað alvöru vekring eða vekringa. Við buðum fram hann Þyt okkar, enda má nú eiginlega segja að klárinn sé hálfgerður sérfræðingur er kemur að skeiðinu og sá sem fær ekki smá kikk út úr því að prófa hann hlýtur nú bara að vera eitthvað skrítinn. Við riðum semsagt af stað frá Halakoti í fylgd hennar Svönu og Júlio reið á Þyt. Svo var riðinn æðislegur hringur meðfram bökkum Hvítár og Ölfusár í dýrindis veðri á góðum hestum í frábærum félagsskap. Svona á lífið að vera og allir voru sammála um það að þetta yrði nú að endurtaka. Í lok reiðtúrsins tók Júlio svo Þyt til kostanna og það gékk mjög vel eftir smá fínpússningar og voru þeir félagar hæst ánægðir með hvorn annan. Við enduðum svo á pallinum hjá Svönu í ostum og rauðvíni. Frábær dagur í alla staði :)

En Júlio var að þessu sinni ekki bara að koma til þess að fara á hestbak heldur fór hann að veiða í 2 daga með Hafliða nokkrum Halldórsyni. Ég get nú ekki ímyndað mér að það hafi verið leiðinlegt en mér skilst að þetta hafi verið mikil upplifun og allir hafi verið smá þreyttir eftir það ævintýri. Síðasta daginn naut hann svo lífsins á Þingvöllum í góðra vina hópi.

 

 

Gæðingamót Sleipnis 2008

Þytur frá Kálfhóli í fimmta skipti á Landsmót með 8.70 í einkunn

02.06.2008

Gæðingamót Sleipnis var haldið um helgina á Brávöllum á Selfossi. Mótið hófst á laugardeginum með forkeppni og lauk á sunnudegi. Þytur og Sigga unnu stóran sigur í A-flokki með einkunnina 8.70 í forkeppni og 8.77 í úrslitum. Þar með mun Þytur keppa á Landsmóti í fimmta skipti en hann hefur fjórum sinnum verið ofarlega í úrslitum á Landsmóti. Þytur er nú fimmtán vetra en flestir geta verið sammála um það að klárinn hafi aldrei verið í betra formi. Elsa hafnaði í fimmta sæti á Farsæl frá Neskaupstað í B-flokki en aðeins fjórir hestar eiga rétt á því að keppa á Landsmóti fyrir Sleipni. Hann er því í þeirri leiðinlegu stöðu að vera varahestur inn á Landsmót. Eftir keppni í úrslitum höfnuðu Elsa og Farsæll svo í fjórða sæti. Lisa Rist sem er vinnukona á Sólvangi og hryssan hennar Fúga stóðu sig frábærlega og voru í þriðja sæti eftir forkeppni í B-flokki og eru því einnig komnar inná Landsmót.

Sigga og Þytur hlutu 8.77 í einkunn í úrslitum og fékk Elsa, eigandi hestsins, Sleipnisskjöldinn eftirsótta afhentan.

Elsa og Farsæll í fjórða sæti og Lisa Rist og Fúga í fimmta sæti.

 

 

Berta Sóley komin heim á Sólvang

12.05.2008

Það er mikil hamingja á bænum núna því hún Berta Sóley er nú loksins komin heim á Sólvang eftir að hafa verið á Vökudeild Landsspítalans í um 2 og hálfan mánuð, en hún kom í heiminn 3 mánuðum á undan áætlun. Skvísan er annars bara mjög hress og er nú orðin tæpar 13 merkur. Berta Sóley er fyrsta barnabarn Elsu og Pjeturs og eru þau að vonum alsæl að fá litlu prinsessuna heim ásamt Siggu og Grétari sem voru allan tímann í Reykjavík.

 

 

Hryssu bjargað úr skurði

04.03.2009

Það eru allskonar slysahættur sem leynast í sveitinni og til allra lukku var hægt að bjarga hryssunni sem féll ofan í skurð á Sólvangi í síðustu viku. Þegar komið var að henni voru eyrun nánast það eina sem stóð uppúr og því mátti ekki seinna vænna.

Fjórar öflugar í hesthúsinu !!!

31.01.2008 - skrifað af Siggu Pje

Sólvangur í faðmi vetrar - Eins og veðrið er búið að gera okkur lífið leitt á síðustu misserum má auðvitað sjá fegurðina inn á milli hríða

Það er verulegur gangur í tamningum á Sólvangi í augnablikinu enda höfum við fengið til liðs við okkur þrjár frábærar stelpur sem heita Tina, Lisa og Karin. Tina og Lisa eru hérna hjá okkur í verknámi frá Hólum og Karin er hér til að afla sér meiri reynslu í þjálfun og tamningum og til að kynnast landi og þjóð. Allar eru þetta frábærar stelpur og mjög færar hestakonur þannig að við getum ekki kvartað. Við höfðum að vísu ekki í hyggju í byrjun að bæta við okkur svona mikið af starfsfólki en Lisa kom til okkar á síðustu stundu og að sjálfsögðu fögnuðum við komu hennar enda þrælflink og dugleg.

Hörkuduglegar stelpur - Tina, Lisa og Karin

Hesthúsið er því alveg stútfullt af tamningatryppum og þjálfunarhrossum og hver krókur og kimi í reiðskemmunni litlu notaður til vinnu þegar veðrið er sem harðast. Annars ganga tamningarnar bara vel, þær Tina og Lísa eru með sitthvor fimm tryppin og svo eru aukalega nokkur tryppi sem þær deila á milli sína allar þrjár. Öll eru nú komin út á götu og það er gaman að sjá tryppin, sem langflest eru fædd hérna á Sólvangi, trítla sín fyrstu spor á götunni. Hef svo í hyggju að kynna tryppin og stelpurnar betur á næstunni hérna á síðunni.

Já það er ekki slæmt útsýnið hérna hjá mér (Siggu) þar sem að ég lít öðru hverju út um gluggann yfir tölvuna úr litla húsinu mínu hér á Sólvangi. En eins og kannski flestir vita þá hef ég verið að sjá um fréttaflutning á Eiðfaxa.is svona meðan ég geng með litlu tvíburastelpurnar mínar sem er von á í lok apríl. Ég verð nú að viðurkenna að það var ekki svo auðvelt að stíga af baki og fara í áhorfendahlutverkið en tíminn er fljótur að líða. Svo eru hrossin líka í svo góðum höndum hjá stelpunum og Elsu að maður þarf engar áhyggjur að hafa.

Elsa er að sjálfsögðu líka að þjálfa og kenna á fullu m.a. í Þorlákshöfn. Hún aðstoðar stelpurnar svo við tamningarnar og stýrir öllu með styrkri hendi. Það má með sanni segja að hún sé vel ríðandi núna og það liggur við að brosið fari stundum hringinn eftir góðan reiðtúr á einum af gullmolunum sem hún er að þjálfa. Enda er hér verið að tala um hesta á borð við Þyt frá Kálfhóli, Farsæl frá Neskaupsstað (sjá hér til hliðar á mynd), Bylgju frá Búðardal, Sprota frá Kambi og Sólvangsmærnar Ljósbrá og Erlu.

Pjetri og Grétari fellur að sjálfsögðu ekki verk úr hendi, þeir keyra saman fyrir aldir fram í bæinn til vinnu og koma til baka um kvöldmatarleitið. Þeir hafa í nógu að brasa útivið hérna á bænum og mér skilst að það sé búið að skýra vélaskemmuna upp. Nú er sem sagt hægt að koma við á “Viðgerðaverkstæði Pjesa og Grésa” á Sólvangi þar sem þeir fyrrnefndu ráða ríkjum.

Kveðja úr snjóhríðinni á Sólvangi,

Sigga Pje

Kallinn kominn í gírinn :)

15.01.2008

Það telst nú ekki til tíðinda þegar riðið er út á Sólvangi en það er stórfrétt að Pjetur skuli bregða sér á bak. Það gerist sjaldan að það sé stund á milli stríða hjá "stórbóndanum" en hann gaf sér þó tíma að fara í reiðtúr á höfðingjanum Þyt frá Kálfhóli á sunnudaginn síðasta. Við erum nokkuð viss um að þetta sé í fyrsta skipti sem Pjetur prófar Þyt. Það hafa verið hálfgerðar yfirlýsingar í gangi hjá bóndanum að nú sé komið að sér að ríða í A-flokk á Landsmóti og spurning hvort að þetta hafi verið fyrsta æfingin ;)

Rekstrartúr eftir hátíðirnar

06.01.2008

Ég vil nú bara byrja á því að óska öllum gleðilegs nýs árs. Það er allt að fara í gang aftur í hesthúsinu eftir hátíðirnar og komin 32 hross á hús.

Við rákum stóðið heim í dag og sóttum úr því nokkur tryppi sem á að temja. 5 þeirra verða notuð í frumtamningaprófi en hún Ann Kristin Künzel (Tina) verður hér hjá okkur í verknámi frá Hólaskóla fram á vor. Einnig verður hún Karin Gunnarsson hjá okkur þannig að við erum komin með frábært teymi í hesthúsið. Ég ætla að kynna þær stöllur betur í vikunni :)

Við fórum svo í rekstrartúr með hrossin sem eru búin að vera á húsi yfir hátíðirnar. Ekki veitti þeim af smá hreyfingu, öll komin með bumbu og full af orku. Við eru svo heppin að vera með rennu sem liggur í áttina að Ölfusánni og er c.a. 7.5 kílómetrar fram og til baka. Það eina sem við þurfum að gera er að festa 4 spotta á leiðinni og keyra svo bara á undan og eftir. Þetta er stórskemmtilegt fyrir bæði menn og hesta og auðvitað hundana líka.

Myndirnar tala sínu máli.

Kveðja Sigga Pje

Við þurfum að fara að æfa okkur :)

17.12.2007

Maður getur aldeilis gleymt sér í að skoða hestamyndbönd á netinu. Stundum sér maður eitthvað sem er svo flott að það hálfa væri nóg.

Þetta er nú fyrst og fremst bara prufa til að sjá hvort að ég geti ekki örugglega birt myndbönd hérna á síðunni.

Kerran fyrir óveður

Brjálaður veðurofsi

14.12.2007

Það voru ótrúlegustu hlutir foknir til á hlaðinu á Sólvangi í gær vegna veðurofsans sem geysað hefur á suðvesturhorni landsins. Þrátt fyrir að traktor og lyftara hafi verið stillt upp við kerrurnar til að verja þær yfir nóttina fauk gamla kerran okkar á hliðina og klessti inn í hina. Engar skemmdir hafa orðið á bænum í dag en við höfum miklar áhyggjur af útiganginum sem stendur þó í heyi. Það er því ekkert hægt að gera en að bíða eftir að veðrinu sloti.

Jæja þetta segir sig nú sjálft...

 

Gríma lætur fara vel um sig hjá pabba sínum

 

Stjörnunótt hlær bara að þessu

Máni og Björt Von eru miklir vinir

Stóðið rekið heim og ragað

05.12.2007

Við tókum öll hrossin heim í vikunni til þess að líta vel yfir hópinn. Þau litu bara vel út miðað við þetta leiðinlega veðurfar sem verið hefur. Það sáust hnjúskar á nokkrum en ekkert alvarlegt og flest eru bara feit og sælleg. Við erum þó byrjuð að gefa öllum útiganginum enda lítur ekki út fyrir að veðrið skáni eitthvað á næstunni.

Á morgun verða svo hrossin öll rekin heim aftur því að þá kemur dýralæknirinn og ætlar að sprauta þau öll með ormalyfi. Við látum sprauta annaðhvert ár, en þess á milli gefum við þeim bara inn.

Ósk er alltaf sælleg

Máni (4v) að brosa til mömmu

Það eru fjölbreyttir litir í stóðinu núna

Björt Von (2v) að sýna sig

Skjanni og Kría (undan Kletti)

Bylgja frá Búðardal - IS1998238953

Bylgja er frábær keppnishryssa með allar gangtegundir góðar. Hún er hágeng, rúm og með mjög góðan vilja. Það er hægt að keppa á henni í tölti, fjórgangi og fimmgangi (þitt val!!)

Brími frá Þóroddsstöðum IS1998188802

Brími er mjög góður keppnishestur sem hægt er að nota í töltkeppnir og hvort sem er fimmgang eða fjórgang, eftir því sem hentar. Hann er með mjög sterkar og góðar gangtegundir og er rúmur. Brími er með góðan vilja og er skemmtilegur í reið.

Haust-tilboð: rýmum til í hesthúsinu fyrir veturinn

20.09.2007

Það eru fullt af góðum söluhrossum af öllum stærðum og gerðum í þjálfun á Sólvangi í augnablikinu. Endilega skoðið nánar hér til hliðar undir söluhross eða hafið samband við okkur mæðgurnar á e-maili: solvangur@emax.is eða í síma: 8997792 (Sigga), 8927159 (Elsa) ef þið eruð að leita að hrossi til kaups.

 

Ögri frá Útnyrðingsstöðum IS2000176212

Ögri er verulega efnilegur fjórgangskeppnishestur. Hann er með frábærar grunngangtegundir og hægt tölt, en á eftir að ná styrk á yfirferðartölti. Þetta er mjög spennandi verkefni fyrir veturinn. Þessi hestur á eftir að ná langt þegar hann er tilbúinn.

Sproti frá Kambi IS2000187464

Mjög efnilegur keppnishestur með frábært tölt, hágengur og rúmur. Hann er einstaklega ljúfur í umgengni og það er mjög gaman að þjálfa hann. Verulega spennandi hestur !!!!

Kapall frá Stokkseyri f. 2000

Kapall er mjög stór og einstaklega fallegur hestur. Hann er auðveldur og skemmtilegur í reið með góðar gangtegundir. Hann er með góðan fótaburð, ljúfur og góður í umgegni og alveg frábær reiðhestur sem gæti vel hentað sem unglingakeppnishestur.

 

 

Það komust 8 folöld á legg hjá okkur í sumar. Þetta er hann Iðandi frá Sólvangi undan Iðu frá Sólvangi og Gára frá Auðsholtshjáleigu. Hann var eina hestfolaldið í ár en öll hin voru hryssur. Á næsta ári eigum við von á 9 folöldum undan hinum ýmsu gæðingum. Þar má meðal annars nefna Leikni frá Vakurstöðum, Þórodd frá Þóroddstöðum, Adam frá Ásmundarstöðum, Gára frá Auðsholtshjáleigu, Farsæl frá Neskaupstað, Spöl frá Hafsteinsstöðum, Þrist frá Þorlákshöfn og Bjarkar frá Blesastöðum.

Gullbrá frá Sólvangi ásamt móður sinni Tíbrá frá Ytri-Varðgjá en faðir hennar er Þóroddur frá Þóroddsstöðum.

04.09.2007

Nú er sumarið bara að verða búið og haustið að ganga í garð, með tilheyrandi sudda og rigningu. Sumarið er búið að vera svo gott að maður getur svo sem ekki kvartað.

Við erum ennþá með um 30 hross á járnum og stefnum á að hafa söluhrossin heima við áfram. Í augnablikinu erum við mæðgurnar bara einar að ríða út og sinna bóndastörfum hérna á bænum. Vinnukonurnar eru farnar heim til Danmerkur og farnar að stunda námið af kappi þannig að nú erum við að leita að góðu fólki til að koma að vinna hjá okkur. Endilega látið okkur vita ef þið vitið um einhverja góða starfsmenn sem eru að leita sér að vinnu.

Annars gengur lífið bara sinn vanagang í sveitinni. Við skemmtum okkur vel á HM í Hollandi, enda þrælgott mót sem vel var staðið að. Svo fór ég (Sigga) út til Herning í Danmörku um síðastliðna helgi til að dæma Gæðingameistarmótið hjá þeim. Það var mjög gaman og margir góðir hestar og knapar þar á ferð. Þeir bestu hefðu sæmt sér vel í úrslitum á Landsmóti svo vonandi verður í framtíðinni áframhaldandi uppsveifla í áhuga á Gæðingakeppni þarna úti.

Stian og Jarl voru flottir á HM.

Strákarnir stóðu sig vel í stuðningsliðinu á HM.

Það gerðu stelpurnar líka :)

 

 

Sigga á Frosta frá Ey. Við stefnum á Suðurlandsmót annað hvort í tölt eða slaktaumatölt.

 

Agnes Hekla og Váli. Agnes er búin að vera að vinna hjá okkur í sumar og er efnilegur knapi sem á framtíðina fyrir sér, svo er hún líka svo skemmtileg ;)

27.07.2007

Það er búið að vera nóg að gera á Sólvangi í sumar. Fullt af efnilegum hrossum í þjálfun (ath. mörg ný söluhross á skrá) og mikið líf og fjör í kennslu. Heyskapur er að mestu í garð genginn og fengur með besta móti vegna þurrviðris.

Annars er það að frétta af okkur að við höfum nú eignast nýjan stóðhest, hann Farsæl (sjá hér til hægri) og eitthvað höfum við nú verið að keppa, að vísu með misgóðum árangri. En svona er lífið stundum.

Þytur og Sigga áttu þó góðan dag í Sörla um daginn og sigruðu með stæl á Glitnis og Íshestamótinu, með 8,63 í aðaleinkunn. Gamli var í þrusu formi og skeiðaði eins og brennt svín. Enda flögguðu dómarnir níum af því tilefni.

Svo bíða bara allir spenntir eftir Heimsmeistaramótinu í Hollandi. Við fjölskyldan ætlum öll að skella okkur á mótið. Pjetur verður að dæma en við hin ætlum bara að skemmta okkur og vonandi sleikja sólina, sem hefur að vísu ekki vikið frá okkur í allt sumar.

Sæl að sinni og sjáumst hress í Hollandi :)

 

Farsæll frá Neskaupstað og Elsa. Farsæll, sem er nýr í eigu fjölskyldunnar, er fyrstu verðlauna stóðhestur undan Gust frá Hóli og Eyrúnu frá Stóra-Sandfelli 2 . Hann er með í aðaleinkunn 8,06 þe. 8,5 fyrir tölt, 9 fyrir brokk og 7,5 fyrir skeið. Við nýtum hann samt sem klárhest. Farsæll er frábær hestur í alla staði. Hann er með frábært geðslag, rúmur, hágengur og við erum svaka ánægð með hann. Það er hægt að koma hryssum undir hann hérna á Sólvangi.

Þríburar - Fyrstu lömbin fæddust í morgun undan ærinni Rut. Fyrst kom eitt, svo kom annað og að lokum það þriðja. Þau hafa hlotið nafngiftina Rip, Rap og Rup.

Sigga og Skjóni að hita upp - Nemendur á reiðkennaradeildinni tóku þátt í móti UMSS á Sauðárkróki um síðustu helgi og Sigga og Skjóni hlutu meistaraflokkseinkunn eða 6,2 en betur má ef duga skal, nú er stutt í lokapróf.

9.05.2007

Nú er tími frjóseminnar, grasið grænkar og fyrstu ungviðin eru komin í heiminn á Sólvangi. Þetta byrjaði að sjálfsögðu með stæl og hraustir þrílembingar komu í heiminn í morgun, 2 gimbur og einn hrútur. Í gærmorgun fæddist svo fyrsta folaldið. Birkið ilmaði, allt var hljótt, yfir oss hvelfdist stjörnunótt, segir í Þórsmerkurljóði. Já er ekki tilveran dásamleg...

Það styttist óðum í lokaprófin mín hérna á Hólum og nú þýðir ekkert annað en að láta hendur standa fram úr ermum og gera sitt allra besta. Annars gengur bara ágætlega með hestana og ég reyni bara að vera bjartsýn með framhaldið. Spennandi að sjá hvernig fer....

Bestu kveðjur að norðan,

Sigga Pje.

 

Stjarna fædd - Fyrsta folaldið fæddist á Sólvangi í gærmorgun og er það hryssa undan Glampa frá Vatnsleysu og Perlu frá Hvolsvelli. Hún hefur hlotið nafnið Stjörnunótt frá Sólvangi.

 

Gamli góður - Höfðingi bætir sig með hverjum deginum sem líður og spennandi að sjá hvernig mun ganga í lokaprófunum á Hólum.

 

Gleðilegt sumar !

Pjetur er að mestu búinn að sjá um að gefa útiganginum í vetur. Hestarnir eru voða miklir vinir hans.

Ef þú smælar framam í heiminn þá mun heimurinn smæla framan í þig ;)

25.04.2007

Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara’ í göngur.

Þetta ágæta kvæði, ort af Jónasi Hallgrímssyni, var það fyrsta sem mér flaug í hug þegar ég settist niður við tölvuna hérna í vorblíðunni á Hólum í Hjaltadal. Já vorið er svo sannarlega gengið í garð (allavega hérna fyrir norðan, veit ekki hversu gott það er orðið á suðurlandinu) og fuglarnir syngja okkur inn í sumarið. Senn líður að sauðburði og ég tala nú ekki um öll folöldin sem fara að fæðast. Já maður verður bara háfleygur í sumarblíðunni hehehhehe ;)

Annars er það að frétta að nú fer að styttast í lokaprófin mín hérna á Hólum og því líður ekki á löngu að þangað til ég kem heim á Sólvang aftur. Grétar ætlar þó að drífa sig suður um helgina og prófa nýja mótórfákinn sinn og byrja aftur í gömlu vinnunni sinni. Það hefur verið ákveðið að Pjetur verði dómari fyrir Íslands hönd á HM í Hollandi og við mæðgurnar ætlum að skella okkur með. Við erum svo búin að vera skoða þann möguleika að reisa stærra reiðhús og vonandi getur sú ósk okkar ræst nú í sumar. Vorkveðja, Sigga.

Það eru ekki bara lifandi fákar á Sólvangi. Þetta er nýi mótorfákurinn hans Grétars. Ætli þetta sé alhliða gæðingur?

Elsa var seig á Lukku-Blesa í 150 m skeiðinu í meistaradeildinni 2007.

28.02 2007

Komið þið sæl á ný. Ég (Sigga) hef verið í smá vandræðum með að uppfæra heimasíðuna hérna frá Hólaskóla en nú er allt komið í lag aftur og vonandi get ég verið duglegri á næstunni. Sölusíðan hefur einnig verið í algjöru lamasessi. En þess er vert að minnast að við eigum núna fullt af góðum söluhrossum svo það er um að gera að skella sér í smá bíltúr og skoða úrvalið. Það verða vonandi teknar einhverjar myndir af gripunum í vikunni og þá get ég smellt því um leið inn á síðuna.

Annars er allt gott að frétta af okkur fjölskyldunni. Ég unni mér vel hérna fyrir norðan og er hæst ánægð með námið á reiðkennaradeildinni. Grétar er ásamt fögru föruneyti á fullu að byggja nýju reiðhöllina á Hólum og vonast er til að hún verði tilbúin seinnipartinn í mars. Hann kann einnig vel við sig hérna fyrir norðan en blótar laununum, sem er ekki skrýtið :( Á Sólvangi er svo blússandi gangur eins og venjulega, fullt hús af hrossum og Elsa, Signe (frá Danmörku) og Magga Bára (er í verknámi) þjálfa á fullu. Elsa er einnig að kenna mikið þessa stundina og er meðal annars með marga efnilega nemendur hjá nágrönnum okkar í Þorlákshöfn. Svo er hún þáttakandi í Meistaradeildinni og gaman verður að fylgjast með hvernig gömlu mun ganga í smalafiminni á morgun :) Pjetur er að sjálfsögðu enn við sama heygarðshornið, selur lyftara hjá Pon á virkum dögum og skellir sér í bóndagýrinn um helgar og lætur ekki sitt eftir liggja í sveitastörfunum. Þannig að það er nóg að gerast og vonandi bjart framundan.

 

 

11.10.2006

Það er bara allt í einu komið haust og næstum vetur, sumarið flaug hjá og orðið allt of langt síðan ég kom með fréttir af okkur fjölskyldunni hérna á Sólvangi. Ég ætla því að stikla á stóru um hvað hefur drifið á okkar daga að undanförnu og hvað við erum að fara að gera á næstu misserum.

Ég (Sigga Pje) er nú orðin fréttamaður hjá Sunnlenska fréttablaðinu ca. 2 daga í viku og ríð þess á milli út hérna á Sólvangi. Um áramótin mun ég síðan feta í fótspor mömmu og flytjast norður yfir heiðar á Hóla ásamt Grétari (kærastanum) og stunda þar nám við reiðkenn-aradeildina en hann mun fara að vinna þar. Elsa og Signe stunda tamningar og þjálfun af fullum krafti sem fyrr. Elsa er einnig að kenna mikið og fær til sín nemendur af öllum stærðum og gerðum. Pjetur er að sjálfsögðu enn við sama heygarðshornið, fer og selur lyftara á virkum dögum og skellir sér í bóndagýrinn þess á milli. Hann lenti að vísu í harðri ormalyfsviðureign við "risa stórt" folald að hans sögn og braut í sér 2 rif, þannig að hann á erfitt með að hlægja mikið þessa dagana.

Annars er bara allt gott að frétta, búið að hressa upp hesthúsið fyrir veturinn og fullt af flottum söluhrossum í þjálfun. Kíkið endilega á söluhrossin. Svo styttist óðum í sláturtíð, þannig að það verður nóg að gera á næstunni.

 

 

 

4.7.2006

Jæja núna erum við aftur komin heim á Sólvang eftir vel heppnað Landsmót á Vindheimamelum í Skagafirði. Við fórum með 3 hross norður, Ósk frá Forsæti í B-flokk, Þyt frá Kálfhóli í A-flokk og Spöl frá Hafsteinsstöðum í ræktunarbússýningu og afkvæmasýningu heiðursverðlaunahestsins Huga frá Hafsteinsstöðum.

Gaman er að segja frá því að Þytur og Elsa lentu í 7 sæti í A-flokknum eftir að hafa sigrað B-úrslitin og er það að okkar mati alveg frábær árangur, enda sjaldan verið eins margir glæsilegir gæðingar saman komnir í einum úrslitum.

Hafsteinsstaðir þeirra heiðurshjóna, Skapta og Hildar, var valið besta ræktunarbúið eftir æsispennandi símakosningu og gaman var fyrir Siggu og Spöl að taka þátt í slíkri glæsisýningu.

Við erum því mjög ánægð með árangur okkar á mótinu og þrátt fyrir að hentugra hefði nú verið fyrir okkur fjölskylduna að fara á Landsmót hérna á Suðurlandi, þá var þetta mjög vel heppnað Landsmót og einstaklega vel að því staðið á allan hátt.

Til hamingju Skagfirðingar með frábært mót!!!!!!

Sigga og Spölur frá Hafsteinsstöðum

Elsa og Þytur frá Kálfhóli

22/02 2006

Nú er keppnistímabilið að byrja með stæl og allt í undirbúningi fyrir næstu mót, sem ekki eru af lakari endanum. Meistaradeildin byrjar á morgun (fimmtudag) á fjórgangi og ég (Sigga) ætla að mæta með Skjóna frá Oddakoti. Síðan ætlum við Signe (danska vinnukonan) að drífa okkur á ísinn í laugardalnum um helgina. Þar mun ég einnig spreyta mig á Skjóna og Signe ætlar með Gáska frá Hveragerði. Þetta verður voða spennandi og vonandi gengur þetta allt vel :)

Signe á Gáska frá Hveragerði

29/11 2005

Það er allt á fullu í heshúsinu þessa dagana og við erum núna með 32 hesta á járnum og í fullri þjálfum. Margir nýir söluhestar eru komnir inná síðuna af öllum stærðum og gerðum og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi :)

Annars er bara allt gott að frétta úr sveitinni og ekki laust við að það sé komin smá jólastemmning á Sólvang enda allt orðið þakið í snjó á ný og öll húsin upplýst af jólaljósum.

5/9 2005

Núna er haustið að ganga í garð og við bíðum óþreyjufull eftir almennilegum þurrki til að ná síðasta heyinu fyrir útiganginn heim.

Margt spennandi er þó fram undan á Sólvangi, því eins og ég sagði frá síðast þá fórum við mæðgurnar norður á Hóla um daginn. Eftir verulega stressandi inntökupróf fengum við þær góðu fréttir að Elsa mun gerast nemandi á 3ja ári við Hólaskóla nú í vetur. Þetta verður eflaust mikil tilbreyting fyrir okkur fjölskylduna þar sem húsmóðirinn mun flytja af bæ norður í land, en tíminn verður nú fljótur að líða eins og ávallt. Ég (Sigga) mun því verða starfandi hér á Sólvangi í vetur ásamt þvi að stunda kvöldnám við Leiðsöguskóla Íslands.

Myndin hér að ofan var tekin á heimatúninu á Sólvangi í sumar. Ef vel er skoðað sést að þarna er um tvo hesta að ræða. Ég veit nú ekki hvernig á þessu stóð en kannski hefur Krummi eitthvað verið þreyttur eftir langan dag og Brynjar ákveðið að halda á honum heim:)

15/8 2005

Jæja það er nú búið að vera heillangt síðan ég uppfærði heimasíðuna enda allt búið að vera á fullu hérna á Sólvangi í sumar. Ég ætla því bara að stikla á stóru yfir atburði sumarsins.

*Ég (Sigga) byrjaði á því að útskrifast sem ferðamálafræðingur frá Háskóla Íslands í vor. Þá tók við utanskóla frumtamninga og þjálfunarpróf frá Hólaskóla. Ég tók prófin samtímis og var því með 10 prófhross vafin inn í bómul í allt sumar. Þetta gékk allt saman vel og nú á ég bara eftir að skila ritgerð til að klára dæmið.

*Tveggja vikna Barna- og unglinga-námskeið héldu okkur við efnið í byrjun sumars

* 8 folöld fæddust á Sólvangi

* 70% af heyinu er komið heim

*Fórum í 7 daga skemmtilegt hestaferðalag um Suðurland

*Og enduðum á hinu verulega blauta leðju heimsmeistarmóti í Sverige. Auðvitað er alltaf gaman á þessum mótum en ég verð nú að viðurkenna að þetta mót var fremur illa skipulagt og aðstaðan til skammar. Hestarnir og þá sérstaklega íslensku landsliðshestarnir og knapar stóðu sig þó með prýði og ég er ekki frá því að þrátt fyrir skipulagið, hafi þarna verið á ferðinni eitt sterkasta landslið okkar til þessa. Til hamingju öll :)

*Á morgun munum við mamma (Elsa) svo leggja land undir fót og ferðast norður á Hólaskóla. En þar mun hún þreyja inntökupróf í reiðkennaradeildina.

19/5 2005

Frjósemi á Sólvangi

Það er búið að vera mikið að gera á fæðingardeildinni á Sólvangi upp á síðkastið, sauðburður í fullum gangi og tvö folöld komu í heiminn í gær. Sauðburðurinn er búin að taka sinn tíma þetta árið og heimilisfólkið orðið dálítið þreytulegt, enda andvökunæturnar orðnar þó nokkrar. Þetta fylgir þó óneitanlega sveitalífinu en fallegt ungviðið kætir, hressir og bætir :)

Fylfullu hryssurnar voru sóttar ofan af mýri fyrir um 4 dögum síðan og eru nú komnar hér á bæjarhlaðið. Fyrstu folöldin létu ekki standa á sér og það er ljóst að hryssunum líður betur svona heima á hlaði, þar sem fylgst er með þeim.

Hryssan hér á myndinni heitir Iða frá Sólvangi og folaldið sem nefnt var Spænir frá Sólvangi er undan Spöl frá Hafsteinsstöðum. Þarna er Spænir litli að reyna að standa á fætur en það er svolítið erfitt að reyna að fóta sig og halda jafnvægi svona fyrstu mínúturnar.

11/4 2005

Um helgina fór fram járningarnámskeið á Sólvangi. Landsliðseinvaldurinn og járningarmeistarinn Sigurður Sæmundsson var með tveggja dag námskeið og próf fyrir þátttakendurnar sem hluta af FT prófi. Námskeiðið tókst í alla staði vel og er Siggi Sæm alger viskubrunnur. Það er alltaf svo kátt í kringum hann Sigga að helst vildum við hafa járningarnámskeið allar helgar. Nú eru flest hrossin hjá okkur orðin snilldarvel járnuð, enda stóðust allir prófið með stæl.

 

4/4 2005

Vorið er komið og grundirnar gróa...!

Jolly Schrenk hélt alveg frábært námskeið á Sólvangi um páskana og komust færri að en vildu. Jolly tók síðan þátt í tölti þeirra allra sterkustu í Egilshöllinni, en var svo óheppin að hryssan hennar datt í einni beygjunni og luku þær þar með keppninni, en hefðu annars eflaust komist inn í úrslitin.

Fyrstu verðlauna moldótti stóðhesturinn okkar hann Andri frá Hafsteinsstöðum hefur ákveðið að leggja land undir fót og fer til Svíþjóðar á næstu dögum. Nýjir eigendur eru fullir tilhlökkunar og fær þessi litfagri gæðingur örugglega góða notkun í Svíþjóð og kemur væntanlega fram á keppnisvöllunum í sumar.

Elsa er nú með 5 hross í sérstakri þjálfun fyrir þjálfunarpróf FT og fer í prófið þann 17.april. Gengur prógrammið vel og undravert er að sjá breytinguna sem orðin hafa á hrossunum.

kveðja PP

1/3 2005

Ég sagði hérna síðast að hún Jolly ætlaði að taka þátt á Svellköldum konum í Egilshöllinni, en ég ruglaðist á viðburðum. Hún mun að sjálfsögðu taka þátt í Landsliðsístöltinu sem er ekki síður spennandi. Skráning á námskeiðið er komin á fullt en enn eru 3 pláss laus vegna forvalla. Þeir sem hafa því áhuga á að drífa sig á fróðlegt námskeið með einum vinsælasta reiðkennara Þýskalands geta enn haft samband við Elsu í síma: 892-7159 og 554-5959 eða hjá Siggu í síma: 899-7792.

Fréttir eru þó þær að Elsa stóðst frumtamningaprófið og er nú komin á fullt í þjálfunarhrossin. Þau eru fimm talsins (Flaumur frá Laugavöllum, Klóthildur frá Glæsibæ, Stígandi frá Dalsmynni, Skörungur frá Þverá 1 og Skjóni frá Oddakoti) og velur hún 3 þeirra til að taka prófið á í lok tímabilsins. Við tókum þátt í vetrarleikum Ljúfs og Sleipnis á sunnudaginn og ég (Sigga) á Ósk frá Forsæti lentum í 5 sæti. Annars er bara ósköp lítið að frétta, mikið riðið út og lífið gengur sinn vanagang í sveitinni.

 

8/2 2005

Jæja nú er nú aldeilis komin tími til að uppfæra heimasíðuna. Vonandi er fólk þó ekki hætt að heimsækja okkur :)

Lífið hefur þó bara gengið sinn vanagang í sveitinni upp á síðkastið. Elsa er búin að vera á fullu við að þjálfa tryppin fyrir frumtamningaprófið og er stóri dagurinn nú seinnipart vikunnar.

Helstu fréttir eru þó þær að hin vinsæla þýska reiðkona og kennari Jolly Schrenk mun halda námskeið á Sólvangi um páskana. En eins og flestum er kunnugt hefur hún átt góðu gengi að fagna á keppnisvellinum síðastliðin ár. Hún er m.a. margfaldur þýskur meistari í hestaíþróttum á íslenskum hestum og vann marga heimsmeistaratitla á hinum þýsk-fædda Ófeigi, í tölti, fjórgangi og fimi fyrir nokkrum árum. Á síðastliðnum misserum hefur þó kveðið mest að henni á stóðhestinum Laxnesi frá Störtal. Jolly mun einnig taka þátt í Ístöltmótinu "Svellkaldar konur" sem haldið verður í Egilshöll þann 19. febrúar næstkomandi.

Skráning á námskeiðið er þegar hafin og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiðinu geta skráð sig hjá Elsu í síma: 892-7159 og 554-5959 eða hjá Siggu í síma: 899-7792.

9/12 2004

Nú fer að líða að jólum og væntanlega flestir komnir í jólaskapið. Sama er uppi á teningnum hérna í sveitinni og jólaundirbúningurinn á fullri ferð. Rýmingarsalan umtalaða gekk óskum framar og ekki annað hægt að segja en að fólk hafi tekið þessum nýjungum hjá okkur prýðis vel. Nokkur hross eru því nú á leið í sínu nýju heimkynni, nær og fjær, þannig að eflaust verður þetta endurtekið næst þegar færi gefst til. Annars er bara verið að þjálfa á fullu hérna á Sólvangi og Elsa vinnur hörðum höndum við að temja tryppin fyrir frumtamningaprófið. En talandi um hátíðirnar og allt umstangið þar um kring, þá kannast eflaust margir við vandræðin við að finna réttu jólagjafirnar. Því datt mér í hug að benda ykkur á reiðtygin frá Alla Aðalsteins og Unn Kroghen. Þessi reiðtygi eru hönnuð af þeim með það í huga að þau fari hestinum sem best og að gæðin séu í fyrirrúmi. Reiðtygin eru því ákaflega vel heppnuð, enda engir viðvaningar þarna á ferð, þar sem þau hafa bæði áralanga reynslu og glæstan feril að baki í hestamennskunni. Enginn hestamaður ætti því að verða svikinn af því að fá til dæmis hófhlífar í jólapakkann sinn. Þið getið fengið frekari upplýsingar um reiðtygin á heimasíðunni þeirra http://www.alliunn.se/ eða kíkt til dæmis í Mr-búðina eða Baldvin og Þorvald á Selfossi. Ef þið lendið svo í vandræðum með að finna fínan hest til að bera þessi reiðtygi þá skal ég fúslega aðstoða ykkur við að finna hann :)

Jólakveðjur frá Sólvangi

 

Við Þytur vorum voða fín á skeiðinu í sumar :)

11/11 2004

Í byrjun mánaðarins var tilkynnt um úrslit skoðanakannanar á hestar.net en samkvæmt henni fékk ég betur nefnd Sigríður Pjetursdóttir flest atkvæði sem Gæðingaknapi ársins. Ég veit ekki betur en að kosið hafi verið eftir siðarinnar reglum og vil ég því þakka velunnurum mínum stuðninginn.

8/11 2004

Flestir hafa eflaust orðið varir við umræðu sem myndast hefur undanfarna daga um réttmæti auglýsingar þar sem að stúlka í reiðbuxunum einum saman situr fyrir. Í kjölfarið var rætt um myndina af Andra frá Hafsteinsstöðum sem setin er af vinkonu minni henni Möndu. Nokkuð ljóst er að fólk hefur misjafnar skoðanir hvað þetta varðar og allt gott og blessað með það. Mér datt bara í hug að sýna hérna hreyfimynd sem ég fann á netinu um daginn þar sem að henni svipar verulega til myndarinnar af Andra og Möndu. Það má spyrja sig að því hvort að myndin hafi vakið það mikla athygli að höfundur þessarar myndar sem er af erlendu bergi brotinn hafi ákveðið að hafa þennan íslenska hest og stúlku sem fyrirmynd. Og ef svo væri þá er ég mjög sátt við auglýsingagildi myndarinnar :)

Valsi frá Flugumýri

Ísar frá Vorsabæ 1

19/9 2004

Nú er haustið gengið í garð og margir búnir að sleppa í haustbeitina. Hér á Sólvangi eru aftur á móti mikið af söluhrossum og tamningartryppum á járnum, því ekki þýðir að loka búðinni þó að laufin fölni. Oft eru haustin líka tilvalinn til að vinna í hrossunum sem að ekki hefur verið sinnt að fullu yfir hásumartímann vegna stanslausra hestamannamóta og sýninga.

Ertu ef til vill að leita að keppnishesti fyrir næsta ár, litfögrum stóðhesti eða drauma reiðhestinum? Kannski er hann að finna hér :) Skoðaðu listann með söluhrossum hér til hliðar og eflaust er þar eitthvað við þitt hæfi.

Ný hross á sölulista eru t.d. Valsi frá Flugumýri og Ísar frá Vorsabæ 1 mjög efnilegir ungir klárhestar, sem eiga eflaust eftir að gera góða hluti á keppnisvellinum í framtíðinni.


10/9 2004

Ferðaþjónusta er sú starfsgrein sem er í hvað mestum vexti í heiminum í dag og er hestatengd ferðaþjónusta eitt af aðal aðdráttaröflum landsins. Mikilvægt er því að standa vel að skipulagi og stefnumótun í hestatengdri ferðaþjónustu. Ég er við nám í Ferðamálafræðum við Háskóla Íslands og hef reynt að skrifa um hestamenn og hestatengda ferðaþjónustu þegar tækifæri hefur gefist. Eflaust hafa einhverjir gaman að því að lesa fróðleiksmola tengda íslenska hestinum og hef ég því ákveðið að birta hér eina ritgerð sem fjallar um ferðaþjónustu, menningu , íslenska hestinn og hugmynd að fyrirtæki í hestatengdri ferðaþjónustu, þ.e. Hestamiðstöðina Sólvang og einnig skýrslu sem fjallar um hestamennsku í þéttbýli, viðhorf og sjálfsímynd hestafólks. Ég vona að þessi verkefni séu skemmtileg og fróðleg aflestrar og gaman væri að heyra athugsemdir eða gagnrýnisraddir frá þeim sem að leggja í lesturinn. Varla þarf að minnast á það að eftirprentun eða notkun efnisins á einn eða annan hátt er ekki leyfileg án þess að hafa samband við höfund. Verkefnin eru hér á hægri hönd :)

Hestamiðstöðin Sólvangur

Hestamennska í þéttbýli,
viðhorf og sjálfsímynd hestafólks

8/9 2004

Við fjölskyldan erum komin aftur á Sólvang eftir fjögurra daga hestaferð um Löngufjörur á Snæfellsnesi. Við slóumst í hóp með Sigga á Stóra-Kálfalæk og fríðu föruneyti hans alls staðar að úr heiminum. Siggi er enginn nýgræðingur í hestaferðum á þessum slóðum og fengum við því að kynnast fjörunum með frábærri leiðsögn hans. Ferðin var því vel heppnuð í alla staði, veðrið var gott og ekki spillti frábær félagsskapur og góður hestakostur. Myndir úr ferðinni eru hér vinstra megin á síðunni undir tenglinum MYNDIR.

23/8 2004

Suðurlandsmót var haldið á Gaddstaðaflötum um helgina og varð Sigga Suðurlandsmeistari í Meistaraflokki Fimmgangi á gæðingnum Þyt frá Kálfhóli. Þau hlutu einkunnina 7,23 í forkeppni og 7,67 í úrslitum.

 

23/8 2004

Klárhryssan Ósk frá Forsæti sem að er í eigu okkar fjölskyldunnar var sýnd í kynbótadómi á Síðsumarssýningu á Gaddstaðaflötum nú í vikunni og hlaut hún fyrir byggingu 7,94, fyrir hæfileika 7,98 og í aðaleinkunn 7,96. Ósk hækkaði verulega í hæfileikaeinkunn frá því í fyrrasumar og fékk hún nú:

Tölt: 8,5 - Taktgott Há fótlyfta
Brokk: 8,5 - Skrefmikið Svifmikið
Skeið: 5,0
Stökk: 8,5 - Ferðmikið Teygjugott
Vilji og geðslag: 8,5 - Vakandi
Fegurð í reið: 8,5 - Mikil reising Mikill fótaburður
Fet: 8,5 - Taktgott Rösklegt
Hægt tölt: 8,0
Hægt stökk: 8,0

Sýnandi hryssunar að þessu sinni er Daníel Jónsson og mun hann einnig sýna hana í yfirlitssýningunni næstkomandi miðvikudag.

29/7 2004

Fjöldi nýrra söluhrossa eru nú komin inn á síðuna undir linknum SÖLUHROSS hér til hliðar. Þar má meðal annars nefna glæsihryssurnar Sprettu frá Bakkakoti og Hrund frá Litla-Hvammi 1, en einnig er þar að finna fjölskylduhross sem og Þráð frá Eyrarbakka, Dögg frá Kópavogi og fleiri.

 

Hrund frá Litla-Hvammi 1

9/7 2004

Nú er Landsmóti lokið og heyskapur kominn á fullt. Það gekk heldur betur vel á Landsmótinu og endaði Þytur í öðru sæti í A-flokki gæðinga og Sigga fékk knapastyttuna fínu afhenta.

23/6 2004

Gisting yfir Landsmót!

Þar sem að forföll voru boðuð á síðustu stundu eru þessi tvö hús staðsett á Sólvangi við Eyrarbakka, laus til leigu yfir landmót. Húsin eru fullbúin öllum þægindum og eru nánari upplýsingar um húsin hér við hliðina undir GISTING.

Sólvangur er einungis í 40 km fjarlægð frá Landsmótssvæðinu þannig að stutt er að fara.

Ef áhugi er fyrir hendi vinsamlegast hafið samband við Siggu Pje í síma 899-7792

 

 

 

23/6 2004

Hrúturinn

Eftir að við fluttum á Sólvang hófum við strax handan við kynbætur á kindunum sem fyrir voru. Einn nágranninn sagðist eiga forláta hrút, algeran kynbótagrip og gætum við keypt hann fyrir aðeins 20 þúsund krónur og gerðum við það að sjálfsögðu og staðgreiddum hann. Nágranninn lofaði að koma með hrútinn daginn eftir. Daginn eftir kom granninn í heimsókn, en með engan hrút.“Heldurðu að greyið hafi ekki drepist í nótt” sagði granninn. Við vorum nú ekkert að ergja okkur yfir því og báðum nágrannan bara að borga okkur skepnuna til baka. En, nú kom babb í bátinn því nágranninn hafði eytt öllum peningunum og gat ekki borgað til baka. Við sögðum honum þá samt sem áður að koma með dauðan hrútinn. “Dauða, hrútinn!, hvað ætlið þið eiginlega að gera við hann?” Nú, við sögðumst ætla að setja hann á tombólu og upplagt væri að hafa hrútinn í verðlaun.”Þið getið ekki haft dauðan hrút í vinning” Jú, það töldum við vera ekkert mál, því það þyrfti enginn að vita að hann væri dauður. Mánuði seinna hittum við grannan og spurði hann hverning hlutaveltan hefði gengið. “Hún gekk vonum framar, við seldum 500 miða á þúsund krónur stykkið og fengum því hálfa milljón í vasann. “Nú” hváði granninn, “kvartaði enginn yfir vinningnum?” “Bara sá sem vann” svöruðum við, “þannig að við endurgreiddum honum bara þúsundkallinn”.

18/6 2004

Landsmót er framundan og er nú endanlegur keppendalisti að komast á hreint.

Ljóst er að fjögur hross í eigu fjölskyldunnar verði í hópi þeirra gæðinga sem að munu blanda sér í baráttuna á Hellu dagana 28. júní - 4. júlí. Spölur frá Hafsteinsstöðum og Elsa munu keppa í B-flokknum fyrir Hestamannafélagið Sörla í Hafnarfirði, en hann hlaut einkunnina 8,47 í forkeppni. Einnig mun hún verða í hópi þeirra 30 knapa sem að keppa í töltinu með glæsitöltarann Dofra frá Þverá, en þau koma inn með einkunnina 6,87.

Þytur frá Kálfhóli II og Sigga Pje munu koma sterk inn í A-flokknum en hann hlaut einkunnina 8.65 í forkeppni og keppir fyrir Hestamannafélagið Sleipni.

Síðast en ekki síst mun Selma Friðriksdóttir tamningastúlka á Sólvangi ríða Ósk frá Forsæti í unglingaflokknum en hún keppir einnig fyrir Sleipni.

Andri frá Hafsteinsstöðum

7/6 2004

Stóðhestarnir Andri og Spölur frá Hafsteinsstöðum eru komnir í hólf fyrir sumarið. Þeir sem að hafa pantað undir stóðhestana eru því vinsamlegast beðnir um að hafa samband sem fyrst.

Spölur er kominn inn á Landsmót í B-flokkinn og mun keppa fyrir Hestamannafélagið Sörla í Hafnarfirði. Hann hlaut einkunnina 8,47 í forkeppni.

 

20/5 2004

Fyrsta folald sumarsins á Sólvangi fæddist í fyrradag . En það var bleikálótt merfolald undan Flugu frá Breiðabólstað og Keili frá Miðsitju. Hún hefur hlotið nafnið Fljóð frá Sólvangi.

Við bíðum svo spennt eftir hinum 8 átta folöldunum sem vonandi koma í heiminn von bráðar.

Þær eru nokkuð samstíga mæðgurnar :)

 

20/5 2004

Það verður nokkuð erfitt að fara hulduhöfði í framtíðinni með hestakerruna okkar aftan í, þar sem að búið er að merkja hana í bak og fyrir. Fjölskyldan er nokkuð ánægð með útkomuna þannig að látið ykkur ekki bregða ef við verðum mikið á rúntinum næstu daga :)

 

22/04 2004

Nú um helgina verður haldin sýning hinnar íslensku Landnámshænu í Húsdýragarðinum og að sjálfsögðu munu tveir fulltrúar frá Sólvangi verða á staðnum. En það eru þeir Grámann (sjá mynd) og Milli sem gerðist svo frægur að um hann var fjallað í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi.

Já hverjum þykir sinn fugl fagur... :)

 

12/04 2004

Nú er afstaðið námskeiðið með Karly Zingsheim, en því lauk nú á föstudaginn eftir þriggja daga kennslu. Námskeiðið var mjög vel heppnað og sýndi Karly fram á það enn á ný hversu frábær kennari hann er. Rúna stóð við hlið hans á meðan námskeiðinu stóð og hjálpaði til við að útskýra fyrir nemendunum hvað þeir ættu að gera. Þau hjónin voru því samstíga í kennslunni sem að gerði það að verkum að nemendur fengu 2 kennara í stað eins. Nemendur námskeiðsins héldu sælir heim eftir kennsluna og minntust margir á það að einhver hugarfarsbreyting á reiðmennsku fylgdi í kjölfarið.

Á laugardagskvöldinu tók Karly síðan þátt í Stórsýningu Landsliðsins í Egilshöllinni á Sæla frá Holtsmúla og enduðu þeir í þriðja sæti í Stóðhestakeppninni.

Myndir af námskeiðinu og æfingum á svellinu er komnar inn!

06/04 2004

Á morgun byrjar hér á Sólvangi þriggja daga námskeið með Karly Zingsheim og Rúnu Einarsdóttir. Námskeiðið mun standa yfir í 3 daga og eru 12 knapar víða af landinu skráðir til leiks. Eins og eflaust margir vita þá var samskonar námskeið haldið hér árið 2002 við miklar og góðar undirtektir, þannig að eftirvæntingin eftir þessu námskeiði leynir sér ekki.

Karly og Rúna munu síðan að námskeiði loknu taka þátt í Stórsýningu Íslenska Landsliðsins í Egilhöllinni á Laugardagskvöldinu, sem að eflaust verður afar spennandi.

 

Hér eru myndir af námskeiðinu :)

23/03 2004

Nú um helgina var haldið á Hestheimum námskeið með hinum alkunna knapa og reiðkennara Johan Häggberg. Johan kemur frá Svíþjóð og er eflaust þekktastur fyrir afrek sín á stóðhestinum Aski frá Håkansgågarden, en þeir eru m.a. núverandi heimsmeistarar í gæðingaskeiði. Á námskeiðinu leiddu saman hesta sína 9 kunnir knapar víða af landinu og byrjaði námskeiðið á föstudegi í bóklegum tíma. Síðan voru nemendur í einkatímum fram á sunnudag. Nemendurnir fylgdust spenntir með hverjum öðrum og mynduðust oft miklar og góðar umræður innan hópsins í kjölfarið. Johan stóð sannarlega undir væntingum sem kennari og hafa nemendur námskeiðsins úr miklu að moða á næstu misserum. Aðstaðan í Hestheimum er eins og best verður á kosið og staðarhaldarar tóku vel á móti hópnum.. Það má því með sanni segja að námskeiðið hafi verið vel heppnað í alla staði.

8/03 2004

Það eru búnar að vera töluverðar umræður um litfagra stóðhesta undanfarið á netinu og hafa þar m.a. okkar stóðhestar verið nefndir í því sambandi. En þá er ég náttúrulega að tala um þá Spöl og Andra frá Hafsteinsstöðum. Sjá STÓÐHESTAR hér til hliðar. Umræðan hefur að mestu snúist um það hversu fáir moldóttir og vindóttir hátt dæmdir stóðhestar séu til á landinu og að það þyrfti að sporna við því að slíkir gripir séu seldir úr landi. Einnig hefur í umræðum verið vegið að litnum á Spöl og komst ég ekki hjá því að svara þeim kolröngu ummælum að hesturinn væri bara rauðblesóttur.

Ég fékk nokkuð skjót viðbrögð við svari mínu frá slúðrurum og enn vilja einhverjir meina að Spölur beri ekki þann lit sem að hann í raun ber. En sitt sýnist hverjum og kannski væri bara réttast að láta þessi ummæli sem "VIND" um eyru þjóta :)

Kveðja Sigga

 

 

Hér er að gamni mynd af Spöl og Dofra sem að tekin var um helgina. Dofri er án efa rauðblesóttur þannig að Spölur hlýtur að vera sjúddirarí rei.....

 

 

13/02 2004

Jæja nú er ég loksins búin að koma inn myndunum úr afmælinu :) Tæknin er nefnilega búin að vera að stríða mér eitthvað undanfarna daga. En nú má jafnvel búast við nýjum myndum oftar inná síðuna þar sem að bóndinn á bænum fékk þessa flottu digital myndavél í afmælisgjöf. Ætlunin er að reyna að taka myndir af keppnum og öðrum atburðum í hestamennskunni og búa til myndarlegan myndabanka.

08/02 2004

Í gærkvöldi var haldin vel heppnuð veisla í tilefni af fimmtugsafmæli Pjeturs N Pje. Veislan var haldin í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka og voru um 120 manns mættir til að fagna með okkur fjölskyldunni á þessum tímamótum. Boðið var upp á heimatilbúnar veitingar úr afurðum frá Sólvangi og köku í eftirrétt. Mikið var um skemmtilegar uppákomur um kvöldið og má m.a. annars nefna að Karlakór Selfoss mætti á svæðið og söng nokkur lög við góðar undirtektir. Eftir matinn steig á stokk hin frábæra stuðhljómsveit karlakórsins Stefnis en þeir félagar (10 talsins) héldu síðan uppi stuði fram eftir nóttu.

Hér eru myndir úr afmælinu :)

 

16/01 2004

Það er aldeilis snjórinn og kuldinn sem að herjar á okkur Íslendinga þessa dagana og ekki annað hægt en að vorkenna aumingjans útigangshrossunum sem að standa af sér þessi vonskuveður. Ég velti oft fyrir mér hversu harðger íslenski hesturinn okkar er og dáist af honum fyrir vikið.

Sum hross eru þó á húsi yfir veturinn og eru nú 32 hross á húsi á Sólvangi, ásamt 9 folöldum sem að eru ræktuð af okkur fjölskyldunni. Flest þeirra eru undan Andra og Spöl frá Hafsteinsstöðum, en einnig eru þar hestfolöld undan Suðra frá Holtsmúla og Pilti frá Sperðli. Gaman er að fylgjast með ungviðinu vaxa úr grasi og erum við fjölskyldan mjög ánægð með útkomuna, þar sem að flest folöldin sýna strax mikla takta. Til dæmis má nefna Spólu sem að er undan Spöl og Steinvöru frá Nautabúi sem er fyrstu verðlauna Orra-dóttir, en hún er feykirúm á öllum gangi og virðist ætla að verða dálítið lík mömmu sinni. Svo má nefna stóðhestsefnin okkar 2 en það er hann Meitill undan Pilti og Flugu frá Breiðabólstað sem að er margverðlaunuð klár- og tölthryssa og Mósart sem er undan Suðra og Tíbrá frá Ytri-Varðgjá. Þeir eru báðir vígalegir á brokki, mjög rúmir og gaman er að sjá hversu mikið tölt virðist vera í Suðra-syninum.

Meitill og Mósart

Spá og Máni

 

 

30/12 2003

Nú er svo komið að þetta ágæta ár 2003 er að líða og árið 2004 er að ganga í garð.

Margt skemmtilegt hefur verið um að vera á Sólvangi síðastliðið ár og má þar m.a. nefna námskeið með Walter Feldmann sem að vakti mikla lukku meðal nemenda námskeiðsins, en einnig voru haldin námskeið fyrir ungu kynslóðina yfir sumartímann. Það má með sanni segja að það sé skemmtilegt og verðugt verkefni að fá að fylgjast með og leiðbeina framtíðarknöpunum í leik og starfi og mun að sjálfsögðu vera boðið upp á nokkur slík námskeið næsta sumar. Ætlunin var að halda mót hér í sumar, en þar sem að mikið var um annir, varð því miður ekkert úr því. Stefnan er því tekin á að halda hér einhver mót á árinu 2004 og vonandi bara fljótlega.

Annars stendur heimsmeistaramótið í Danmörku algjörlega upp úr á síðastliðnu ári og verður það lengi í minnum haft. Það er alltaf jafn gaman að verða vitni að þeim gífurlegu afrekum sem að knapar landsins og þessir ótrúlegu gæðingar gera og fá að taka þátt í þeirri gleði og þeim fögnuði sem að brýst út meðal áhorfenda.

Það verður einnig margt um að vera á Sólvangi á komandi ári. Þá má helst nefna námskeiðið með Karly Zingsheim sem verður haldið um páskana, en gífurleg eftirspurn hefur verið eftir því að komast á það, enda Karly sýnt það og sannað að hann er einn af okkar fremstu reiðkennurum.

Einnig verður eitthvað um breytingar þar sem að Snorri Valsson sem að hefur verið aðalvinnumaðurinn okkar mun nú hætta störfum á Sólvangi og hefur þess í stað ákveðið að drífa sig í skóla. Í stað hans hefur því verið ráðin ung stúlka frá Danmörku sem að heitir Anne.

Markmið okkar á árinu 2004 er svo að vera vel ríðandi á Landsmótsári og njóta stundanna í sveitinni á Sólvangi.

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Fjölskyldan Sólvangi.

 

14/12 2003

Það er eitthvað búið að vera lítið um fréttir og uppfærslu á heimasíðunni undanfarið þar sem að ég er á fullu í prófum. Setti þó inn nokkra nýja brandara fyrir þá sem hafa gaman að því. Annars er bara allt við það sama á Sólvangi, mikið riðið út og fullt af efnilegum hrossum. Það er gaman að segja frá því að fyrstu 2 tryppin sem að eru ræktuð af okkur fjölskyldunni eru að stíga sín fyrstu skref í tamningu. Það er framtíðar stóðhestsefnið hann Riddari, undan Hróki frá Hlemmiskeiði og Vöku frá Víðivöllum og Þruma Reyksdóttir undan Flugu frá Breiðabólstað. Þau eru bæði orðin vel reiðfær og lofa mjög góðu. Það verður því spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Það eru miklar kynbætur í gangi hjá okkur í kindaræktinni þessa daganna og búið er að sæða allar kindurnar. Miklar vangaveltur voru um hvaða hrútar væru gæfulegastir og var á endanum fengið sæði úr Arfa, Sólon og Snodda sem að eru allt mjög hátt dæmdir hrútar.

Annars vona ég bara að jólaundirbúningurinn gangi sem best hjá ykkur öllum og þið sem að eruð í prófum eins og ég ,,Hættið að lesa þetta og byrjið að læra"! Jólakveðjur frá Sólvangi

Sigga Pje

 

20/11 2003

Höfðinginn Skagfjörð frá Þverá, var felldur í dag, fyrir sakir skaufakrabbameins sem ekki varð við ráðið. Skagfjörð var orðinn 26 vetra gamall en á þessum árum hafði hann afrekað að vinna yfir 300 verðlaun. Skagfjörð var einstakur gæðingur sem átti sér engan líkann. Það má með sanni segja að hans verður sárt saknað en minning hans mun lifa.

Nú Skagfjörð er fallinn frá
og finnur hvíld í beði.
Minnumst öll með eftirsjá,
öðling sem veitti oss gleði.

 

12/11 2003

Það eru komin nokkur ný hross inn á SÖLUHROSS hér vinstra megin á síðuna. Þar má meðal annars nefna Óðinn tveggja mánaða taminn, efnilegan fimmgangshest sem að myndin er af.

9/11 2003

Það hafa streymt til mín skemmtilegir brandarar síðustu daga og eru nokkrir þeirra komnir inn í brandarabankann hér vinstra megin á síðuna. Ég vil þakka öllum þeim sem að sendu mér línu og vona að sem flestir hafi gaman af þessu.

 

3/11 2003

Það geta ekki öll dýrin í skóginum verið vinir. Úbbs!

21/10 2003

Fyrst að ég var að gera grín að honum Grána gamla um daginn datt mér í hug að sýna ykkur hana Matthildi Búkollu sem að hefur valið sér sama ferðamátann :)

6/10 2003

Jæja nú er sláturtíðin gengin í garð og var fyrsti í slöktun í dag. Það er nú oft erfitt að sjá á eftir þessum greyjum, en svona er nú bara lífið.

6/10 2003

Oft ratast kjöftugum orð í munn því að Snorri segir gjarnan ,,Fé er jafnan fóstra líkt"

Látum okkur sjá :)

29/9 2003

Það stefnir allt í það að Karly Zingsheim og Rúna Einarsdóttir muni halda sitt annað reiðnámskeið á Sólvangi um páskana 2004.

Námskeiðið mun verða ætlað keppnisfólki til undirbúnings fyrir stórátök sumarsins en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður til að sem bestur árangur náist.

 

Karly er tvímælalaust einn færasti þjálfari og knapi á íslenskum hestum um þessar mundir. En yfirburðir hans liggja ekki síst í hvernig honum tekst að blanda saman af frábærri kunnáttu klassískum fimiæfingum og frjálsri reiðmennsku þar sem lagt er upp úr drift á gangtegundum.

Rúnu þekkjum við nú öll sem frábæran og prúðan knapa, sem hefur mikla reynslu af tamningum og þjálfun hrossa ásamt því að eiga glæsilegan keppnisferil að baki.

Námskeiðið verður auglýst síðar!

18/9 2003

Það er búin að vera mikil sorg á Sólvangi á síðastliðnum dögum, því að tvö af dýrunum okkar þurftu að kveðja og fara til dýrahimna. En það var heimilishundurinn hún Loppa sem var orðin svo gömul og efnilegi graðfolinn okkar hann Háfeti undan Flugu og Kveik, sem sló svo eftirminnilega í gegn á folaldasýningu á Ingólfshvoli fyrir 2 árum. Hann slasaðist í stóðhestagirðingu og því miður var ekkert hægt að gera.

 

15/9 2003

Skagfjörð frá Þverá, gamli gæðingurinn okkar, var heima við í sumar og fékk að fara nokkrar ferðir með krakkana á reiðnámskeiðinu. Honum hefur ekki verið riðið í 6 ár og gaman var að sjá hversu sprækur þessi 26 vetra höfðingi er enn.

 

9/8 2003

Eftir frábærar stundir á Heimsmeistarmótinu í Herning eru allir fjölskyldumeðlimir Sólvangs komnir heim aftur. Við óskum keppendum mótsins og öllum sem að stóðu innilega til hamingju með frábæran árangur! :)

 

6/6 2003

Nú er hann Andri okkar frá Hafsteinsstöðum kominn í fyrstu verðlaun. Sjá dóminn undir stóðhestar hér við hliðina.

21/5 2003

Walter Feldmann námskeiðið sem haldið var þann 27-29 apríl, fór vel fram í alla staði og voru þátttakendur ánægðir með útkomuna. Hann kenndi meðal annars hvernig hægt er að þjálfa innbundin hest í taumi eins og myndin hér sýnir.

15/4

Fákskrakkar komu í heimsókn

Fákskrakkar komu við á Sólvangi í hinni árlegu vorferð félagsins. Allir fengu prins póló og kók og skoðuðu dýrin á bænum við góðar undirtektir.

Takk fyrir komuna! :)

11/4 2003

Þröngt mega sáttir sitja

Gráni var bara sáttur á leið sinni á sína fyrstu keppni, þar sem að hann tók þátt í valhoppi og vann :)

9/4 2003

Reiðnámskeið á Sólvangi

Haldin verða fjögur námskeið fyrir börn og unglinga í sumar.

9-13 Júní - Byrjendanámskeið

16-20 Júní - Framhaldsnámskeið

30 Júní -4 Júlí - Byrjendanámskeið

7-11 Júlí - Framhaldsnámskeið

Skráning er hafin í síma 892-7159 eða 554-5959, hjá Elsu

25/2 2003

Walter Feldmann á Sólvangi
Reiðsnillingurinn og Íslandsvinurinn Walter Feldmann kemur til Íslands og heldur þriggja daga reiðnámskeið á Sólvangi við Eyrarbakka 27-29 apríl nk. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Námskeiðið kostar 25.000 kr. á mann. Áhugasamir hafi samband við Elsu í símum 5545959-8927159 eða sendið tölvupóst elsa-m@islandia.is

25/2 2003

Reiðvöllur og skeiðbraut.

Seinnipartinn í gær fórum við fyrstu ferðina á nýja vellinum okkar. Eftir að hafa verið að týna grjót af honum í nokkra daga var alveg frábært að geta riðið spariskjónunum okkar á ný völtuðum vellinum. Völlurinn verður að vísu vígður við betra tækifæri og vonandi verða ófá mótin þreytt á honum.