Mörg ný söluhross á húsi á öllum stigum tamningar sem ekki eru komin inn á síðuna!!! Einnig eitthvað af vel ættuðum ótömdum unghrossum.

Ekki hika við að hringja og spyrja um frekari upplýsingar hjá Elsu í síma: 8927159 eða hjá Siggu í síma: 8997792. Einnig er hægt að hafa samband með tölvupósti elsa-m@islandia.is

 

Erla frá Sólvangi IS2002282282

Aldur: 6 vetra
Litur: Brún tvístjörnótt
F: Piltur frá Sperðli (Ae: 8.33)
M: Steinvör frá Nautabúi (Ae: 8.09)

Erla er mjög efnileg ung fimmgangshryssa sem er mjög vel ættuð. Hún er hágeng með góðar gangtegundir. Hún hefur bæði gengið í gegnum frumtamninga- og þjálfunarpróf frá Hólaskóla og kann orðið nokkuð mikið. Við erum nýbyrjuð að eiga við skeið í henni og það er allt saman galopið og mjög efnilegt. Erla er frekar viljug en ekkert stressuð. Mjög gott hross í alla staði sem á bara eftir að bæta sig með tíð og tíma.

Price: 1.500.000 isk (ca. 10.000 €)

Videó af Erlu: http://www.youtube.com/watch?v=SH0guTdlm7M

Ögri frá Útnyrðingsstöðum IS2000176212

Aldur: 8 vetra
Litur: Rauðstjörnóttir
F: Hugi frá Hafsteinsstöðum
M: Ögrun frá Útnyrðinsstöðum

Ögri er stór og fallegur hestur sem er efni í fjórgangskeppnishest. Hann er með frábærar grunngangtegundir og styrkist með hverjum degi á tölti. Hann er að komast í flott form og við teljum að þessi hestur eigi eftir að ná langt í keppni með áframhaldandi vinnu. Þetta er svona töffari sem þarf bara að vinna aðeins meira í.

Video af Ögra: http://www.youtube.com/watch?v=hrgpkT908Lw

Polki frá Dýrfinnustöðum IS2001158642

Aldur: 7 vetra
Litur: Moldóttur
F: Brunnur frá Kjarnholtum 1
M: Grágás frá Dýrfinnustöðum

Polki er stór og fallegur fjórgangshestur sem er bæði efni í góðan reiðhest og/eða keppnishest. Hann kann mikið af fimiæfingum og er búin að ganga í gegnum þjálfunarpróf frá Hólaskóla. Hann er hágengur og er að verða frekar rúmur á gangi og gæti verið tilbúinn á keppnisvöllinn næsta vor. Þetta er mjög efnilegur hestur að okkar mati, hestur sem tekið er eftir!!! :)

Video af Polka: http://www.youtube.com/watch?v=YbS02It1ML8

 

Eros frá Haukagili IS2000156179

Aldur: 8 vetra
Litur: Rauðstjörnóttur
F: Bliki frá Bakka
M: Harpa frá Dalvík

Eros er mjög efnilegur fimmgangshestur með góðar og hreinar gangtegundir og frábært skeið. Góður og þjáll reiðhestur sem er efni í keppnishest fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á fimmgangshestum. Frábær hestur fyrir þá sem vilja æfa sig að skeiðleggja, þar sem hann er einstaklega auðveldur að leggja til skeiðs.

Videó af Eros: http://www.youtube.com/watch?v=uEkQxnSEvJg

Hespa frá Sólvangi IS2002282280

Aldur: 6 vetra
Litur: Jörp
F: Mjölnir frá Sandhólaferju
M: Loka frá Vogsósum 2

Hespa er vel ættuð og mjög efnileg fjórgangshryssa. Mamma hennar er kannski ekkert með sérstakan dóm en hún var keppnishryssa hjá okkur til nokkra ára og skoraði hátt bæði í B-flokk og tölti. Systir hennar Sylgja var svo sýnd um daginn með ágætis dóm. Hespa hefur bæði gengið í gegnum frumtamninga og þjálfunarpróf frá Hólaskóla. Þetta verður verulega smart hryssa með áframhaldandi þjálfun.

Mynd kemur í vikunni

Aldís frá Sólvangi IS200228228

Aldur: 6 vetra
Litur: Brún
F: Geisli frá Litlu-Sandvík
M: Perla frá Hvolsvelli

Aldís er mjög falleg fjórgangshryssa með frábærar grunngangtegundir. Hún hefur eins og fleiri hross hér gengið bæði í gegnum frumtamninga og þjálfunarpróf frá Hólaskóla. Þetta verður mjög flott hryssa með áframhaldandi þjálfun. Efni í kynbótahryssu og keppnishross að okkar mati.

Meitill frá Sólvangi IS2003182281

Aldur: 5 vetra
Litur: Rauðblesóttur
F: Piltur frá Sperðli
M: Fluga frá Breiðabólstað

Meitill er mjög efnilegur fjórgangshestur. Hann er vel ættaður undan gæðingnum Pilti frá Sperðli og Flugu sem hefur verið í eigu okkar fjölskyldunnar til lengri tíma og er ein okkar besta ræktunarhryssa. Hún á glæstan feril að baki í keppnum í fjórgangi, B-flokki og fékk nokkrum sinnum yfir 90 punkta í tölti. Meitill fór í gegnum frumtamningapróf frá Hólaskóla í vetur og er með frábærar grunngangtegundir og er að byrja að stíga sín fyrstu skref á tölti. Þetta er hestur sem verður pottþétt góður með meiri þjálfun.

Rúsína frá Sæfelli IS2001287252

Aldur: 7 vetra
Litur: Brúntvístjörnótt
F: Skírnir frá Nýjabæ
M: Jarpstjarna frá Kolkuósi

Rúsína er einstaklega falleg fimmgangshryssa sem er af hinu þekkta Kolkuóskyni. Hún er hágeng og viljug og hefur eins og mörg önnur hross hérna gengið í gegnum þjálfunarpróf frá Hólaskóla. Hún er flugvökur og er með góða gangtegundir. Mjög efnileg hryssa.

Video af Rúsínu: http://www.youtube.com/watch?v=okWgjhUrGVo

Bráinn frá Sólvangi IS2002182281

Aldur: 6 vetra
Litur: Brúnn
F: Sveinn Hervar frá Auðsholtshjáleigu
M: Tíbrá frá Ytri-Varðgjá

Bráinn er vel ættaður og einstaklega fallegur og góður hestur. Hann er mjög skemmtilegur í reið og ljúfur í alla staði. Þetta er svona hestur sem að flestir hljóta að hafa gaman af í reið og að okkar mati er hann efnilegur keppnishestur. Hann hefur bæði gengið í gegnum frumtamninga og þjálfunarpróf frá Hólaskóla. Mjög góður hestur í alla staði.

Bakkavör frá Syðri-Brekkum IS2001258673

Aldur: 7 vetra
Litur: Móálótt
F: Leiknir frá Dýrfinnustöðum
M: Elsa frá Syðri - Brekkum

Bakkavör er mjög efnileg hryssa, hágeng, með góðar gangtegundir og frábært tölt. Hún er mjög skemmtileg í reið.

Sævar frá Sólvangi IS2003182280

Aldur: 5 vetra
Litur: Brúnn tvístjörnóttur
F: Andri frá Hafsteinsstöðum
M: Fríða frá Sólvangi

Sævar er mjög ljúfur fjórgangshestur, fæddur okkur og undan hryssu sem hefur bara gefið okkur frábæra reiðhesta og keppnishesta með einstakt geðslag. Hann fór í gegnum frumtamningapróf frá Hólaskóla síðastliðinn vetur og er orðinn nokkuð sjóaður. Mjög efnilegur hestur í alla staði.

Mynd kemur í vikunni

Lykill frá Sólvangi
IS2003182282

Aldur: 5 vetra
Litur: Jarpur tvístjörnóttur
F: Spölur frá Hafsteinsstöðum
M: Loka frá Vogsósum 2

Lykill er efnilegur fjórgangshestur sem fór í gegnum frumtamningapróf frá Hólaskóla í vetur. Hann er að stíga sín fyrstu skref á tölti og er efni í góðan reiðhest.

Stjörnublesi frá Sólvangi IS2003182284

Aldur: 5 vetra
Litur: Svartur Blesóttur
F: Spölur frá Hafsteinsstöðum
M: Stjarna frá Sólheimum

Stjörnublesi er búin að vera í uppáhaldi á Sólvangi frá því að hann fæddist. Hann er svona dúlluhestur með mikið fax og svo flottur á litinn. Hann er fjórgangshestur og það er verið að kenna honum að tölta. Stjörnublesi er búin að vera algjör draumur í tamningu og það má í raun segja að hann hafi verið hálf sjálftaminn. Við höfum enga trú á öðru en að þetta verði farsæll fjölskylduhestur þegar hann hefur náð tökum á töltinu.