 |
Sigrídur
Pjetursdóttir (SIGGA)
hefur verið í hestamennsku frá barnsaldri. Sigga hefur
náð góðum árangri í keppnum frá
barnsaldri og er m.a. 14 faldur Íslandsmeistari, sigurvegari í
unglingaflokki á Landsmóti 1994, var í öðru
sæti á Fjórðungsmóti 1996 og öðru
sæti í A-flokki gæðinga á Landsmóti
2004. Hún hefur unnið
við tamningar og þjálfun til margra ára bæði
hérlendis og erlendis. Sigga
er með tamninga- og þjálfunarpróf frá FT
og Hólaskóla og útskrifaðist
sem reiðkennari vorið 2007.
Hún er þar að auki íþróttadómari,
gæðingadómari og prófdómari í Knapamerkjum.
Sigga hefur menntað sig á öðrum sviðum og er ferðamálafræðingur
og fjölmiðlafræðingur BS frá HÍ og afþreyingarleiðsögumaður
frá Leiðsöguskóla Íslands.
siggapjeturs@simnet.is
|